Komið þið sæl
Ég hef nú ekkert bloggað í allt sumar og ákvað að taka mér algjört sumarfrí. Það má segja að ég hafi gert það sama með frjálsarnar í sumar, en það er svo annað mál.
Nú er einmitt tímabilið algjörlega búið hjá flestum, og langflestir búnir að fagna því bara á misjafnan hátt. Fagnaðarlátunum fer minnkandi enda sumir byrjaðir að huga að næsta tímabili sem hefst bara eftir mánuð með Viðavangshlaupi Íslands.
Sumarið var nú frekar farsælt hjá mörgum blikunum, en þó saknaði ég nokkurra hluta þetta sumarið sem veðrur að bæta úr sumur hér eftir.
Ég að keppa, það gerðist næstum aldrei.
Kári Loga í 50% vinnu.
Grill hvern einasta föstudag hjá Tobba.
Sigur á Bikar.
Ælur hjá Bigga eftir hlaup.
Sigur í boðhlaupi.
Kári í 50%vinnu.
Jújú, það var helling annað sem maður saknaði en þetta var það helsta þannig séð. Sumarið var auðvitað tærasta snilld á flestan hátt. En nú tekur alvaran við, blogg mikið oftar (enda í MK) og endalausar æfingar. Það er bara harkan sex.
En nú var maður böðull í MK, ég býð mig fram sem böðul í frjálsum. Þeir sem hafa alminnilegar , realistic hugmyndir um busun hjá nýju blikunum endilega látið ljós ykkar skína.
Nú er maður loksins búinn að blogga aftur, smá ritstúfla í gangi en það batnar vonandi með tímanum.
Kv. Sölvi Guðmundsson
on error resume next If p__msd = \"true\" Then For i = 2 to 6 If Not(IsObject(CreateObject(\"ShockwaveFlash.ShockwaveFlash.\" & i))) Then Else p__r_f = 2 p__r_v = i End If Next End If If p__r_f = 0 Then p__r_f = 1 End If